Síður

1/29/2013

Erfiðir kúnnar, afgangar og föndur...

Byrjaði daginn á frábæru námskeiði um erfiða kúnna og kvartanir ásamt góðum kaffibolla. Þetta var ekta svona námskeið sem hjálpar ekki bara í vinnunni heldur einnig í daglegum samskiptum. Það er alveg með ólíkindum hversu langt maður kemst á því einu að sýna skilning. Bara svona þúst ... almennt í lífinu. Ég er og hef alltaf verið meðvituð um það að reyna að setja mig í annarra manna spor. Það getur virkað bæði vel og illa, maður verður að passa sig á því að verða ekki meðvirkur en að sama skapi er maður töluvert kurteisari ef maður reynir að átta sig á því að hvað manneskjan á móti manni er að ganga í gegnum. Svona námskeið hefðu allir gott af því að fara á, kannast flestir við að vera annaðhvort dónalegir eða þurfa að taka á móti dónalegheitum, sumir kannast jafnvel við bæði....



Í hádeginu fékk ég mér svo einn þann besta pestórétt sem til er að mínu mati! Uppskriftina fékk ég hér. Þennan hef ég eldað ansi oft og fæ aldrei leið á honum, hann er líka temmilega léttur og ennþá betri daginn eftir. Plús það að það er fáránlega auðvelt að elda hann.

*Veit ekki alveg hvernig það verður að lifa án kjúklings í mánuð*


Þá lýkur dagbók Margrétar í bili. 

Ég hef verið að viða að mér allskonar föndurverkefnum og er að skipuleggja smá á næstunni þannig að endilega fylgist með! 

Þangað til getiði dáðst að krukkuföndurskipulaginu mínu. Tók að vísu ekki margar myndir en þetta gefur ykkur smá hugmynd. Náði bara í allar krukkurnar mínar og flokkaði eftir efni. Gæti ekki verið einfaldara og nú er töluvert einfaldara að grípa í föndrið þegar andinn kemur yfir. 



Þangað til næst. 
Jákvæðnisföndurkveðjur.

1 comment:

Anonymous said...

Hvað ég er ánægð með að þú skulir vera byrjuð að blogga aftur Magga! Ég sit (neita að liggja) í veikindum og þá er svo gott að hafa flott blogg til að lesa :)

Eins og þú veist er ég súper ekki handy, hvernig nærðu miðunum svona vel af krukkunum? Læturu þær liggja í vatni?